Prédikun flutt í Neskirkju 04. október 2009
Sigurvin @ 14.34 4/10
Biðjum og styðjum. Bersynduga og þurfandi, illa lyktandi sem spariklædda.
Á þessum sunnudegi og þeim næsta stendur íslenska þjóðkirkjan fyrir söfnun í messum landsins til styrktar innanlandsaðstoðar Hjálparstarfs kirkjunnar undir yfirskriftinni biðjum og styðjum. Tilefni söfnunarinnar er það að ár er nú liðið frá því að efnahagskreppan skall yfir þjóðina með hruni bankanna í október í fyrra en verkefni innanlandsaðstoðarinnar hafa aldrei fyrr verið viðameiri. Sem dæmi má nefna að í septembermánuði á síðasta ári varði Hjálparstarf kirkjunnar 900.000 krónum til aðstoðar íslenskum fjölskyldum með fjárstyrkjum, mat, lyfjum, skólagjöldum, skólavörum, tómstundagjöldum og fleira. Í ár hefur þessi tala tífaldast og ekkert lát er á beiðnum eftir aðstoð.
Áfram…
Baunamáltíðin sem breytti öllu!
Sigurvin @ 13.34 18/9 + 2 ath.
Biblíumatur í Neskirkju 18. september 2009.
Verið hjartanlega velkomin í þessa veislu í Neskirkju, þar sem ykkur er boðið að stíga inn í eina af máltíðum Biblíunnar og taka þátt í því fjölbreytta og lærdómsríka borðhaldi sem þar er lýst. Að þessu sinni er efnt til Baunamáltíðarinnar sem breytti öllu en sögusvið þessarar örlagaríku máltíðar tvíburabræðranna Jakobs og Esaú er að finna í hinu epíska sagnverki Biblíunnar sem á íslensku nefnist Fyrsta Mósebók en á erlendum málum einfaldlega upphafið eða Genesis.
Áfram…
Barna og Unglingastarf Neskirkju að hefjast.
Sigurvin @ 13.10 1/9
Þá er að hefjast nýr vetur í BaUN og mikil tilhlökkun er í börnum og leiðtogum. Í sparnaðarskyni var ákveðið að þétta dagskrá barnastarfsins og eru mánudagar og þriðjudagar nú þéttskipaðir en þjónustan við börnin og fjölskyldur þeirra er sú sama og undanfarin ár. Barnastarf kirkjunnar er sannarlega mikilvægt framlag til þjóðfélagsins nú en kirkjan býður upp á öruggan og uppbyggilegan vettvang fyrir börn og unglinga, foreldrum að kostnaðarlausu. Stundaskrá BaUN er eftirfarandi: stundaskraBaUNH09
Skýrsla BaUN 2008-2009
Sigurvin @ 23.34 10/6
Eftir gjöfulan vetur í barna- og unglingastarfi Neskirkju (BaUN) er hér yfirlit yfir starf vetrarins.
Það eru sannarlega forréttindi að fá að þjóna ungmennum Vesturbæjar í gegnum kirkjuna.
Skýrsla barna- og unglingastarfs Neskirkju 2008-2009
Erindi flutt á Hugvísindaþingi Háskóla Íslands 14. mars 2009
Sigurvin @ 21.48 27/5
Erindi þetta er sett fram sem hluti af rannsókn ég er að vinna undir handleiðslu Jóns Ma. Ásgeirssonar og ber yfirskriftina ,,Mynd karlmennsku: Persóna Jakobs í frumkristnum heimildum”. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á hvernig persóna Jakobs birtist innan Nýja testamentisins og í kristnum ritum fyrstu alda í ljósi hugmynda um karlmennsku og leiðtogahlutverk í hinum grísk-rómverska meningarheimi. Í þessu erindi verður fjallað um stöðu Jakobs í þeim flokki gyðing-kristinna rita sem nefnast Skugga-Klemensarritin.
Áfram…
Útvarpsprédikun flutt í Seltjarnarneskirkju 17. maí 2009
Sigurvin @ 10.06 21/5
Bænin má aldrei bresta þig,
búin er freisting ýmisleg.
Þá líf og sál er lúð og þjáð
lykill er hún að drottins náð.
Náð sé með ykkur og friður frá Guði föður vorum og drottni Jesú Kristi.
Kæri söfnuður Seltjarnarneskirkju, góðir landsmenn.
Það er ekki laust við að sumarhugur sé í fólki í þeirri vorblíðu sem hefur gælt við okkur þessa helgi, að ekki sé minnst á þau jákvæðu áhrif sem að Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva hefur á þjóðarsálina og fyrir okkur höfuðborgarbúa, metnaðarfull dagskrá listahátíðar.
Áfram…
Prédikun flutt í Neskirkju á æskulýðsdaginn 01. mars 2009
Sigurvin @ 19.47 1/3
Náð sé með ykkur og friður frá Guði föður vorum og drottni Jesú Kristi, Amen.
Kæri söfnuður, gleðilega hátíð.
Þema æskulýðsdagsins í ár er 23. Davíðssálmur og við höfum verið að vinna með þann sálm í barna- og unglingastarfinu síðastliðna viku í undirbúningi fyrir daginn. Hér frammi býður ykkar dýrindis skúffukaka (myndir), sem framhaldsskólakrakkarnir okkar bökuðu á aðfararnótt laugardags (myndir) og er hún með grænu kremi og fjölda sykurpúða-kinda í anda sálmsins. Æskulýðsfélagið okkar vann stuttmynd sem sýnd verður hér rétt á eftir en þar er unnið á nokkuð nýstárlegan hátt með sálminn og auðvellt er að sjá áhrif nýafstaðinna atburða í efnistökum unglinganna.
Áfram…
Prédikun flutt í Seltjarnarneskirkju 8. febrúar 2009
Sigurvin @ 21.53 8/2
Náð sé með yður og friður, frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi. Amen.
Kærar þakkir Sr. Sigurður og söfnuður Seltjarnarneskirkju fyrir að fá að prédika hér í dag.
Í starfi mínu tala ég aðallega við börn og unglinga, en ég hef haft umsjón með barna- og unglingastarfi Neskirkju síðastliðin þrjú ár, eða frá því að ég lauk embættisprófi í guðfræði. Starf mitt er knúið áfram af þeirri sannfæringu að í trúaruppeldi barna og unglinga sé unnið forvarnastarf sem er ómetanlegt. Það ungmenni sem gengur út í lífið með þá vissu að það eigi Jesú Krist að, sem vin, frelsara og fyrirmynd, þekkir skjól sem aldrei bregst.
Áfram…
Ferð unglingastarfs Neskirkju á Evrópumót KFUM í Prag
Sigurvin @ 15.39 27/8
Unglingastarf Neskirkju sótti Evrópumót KFUM þann 3.-9. ágúst síðastliðinn.
Hópurinn samanstóð af 9 ungmennum á aldrinum 15-18 ára auk mín sem var fararstjóri hópsins.
Ferðasögu hópsins má nú nálgast hér (Ferðasaga Prag) á PDF formi en myndir úr ferðinni eru á myndasíðu BaUN.
Frekari upplýsingar um mótið má skoða heimasíðu mótsins YMCA2008 eða heimasíðu KFUM á Íslandi.
Trúlausi guðfræðingurinn og guðfræðideild Háskóla Íslands.
Sigurvin @ 11.23 10/7 + 3 ath.
Þann 16. Júní síðastliðinn birtist opnulöng grein í Fréttablaðinu eftir Teit Atlason er ber yfirskriftina ,,Trúlausi guðfræðingurinn”. Greinin sem er tekin af bloggsíðu höfundar lýsir trúleysisafstöðu hans og því hvernig að tveggja ára nám við guðfræðideild Háskóla Íslands hafi haft áhrif á þá trúarafstöðu. Í greininni gagnrýnir höfundur guðfræðideildina, sem hann segir gallaða stofnun, og tiltekur m.a. eftirfarandi rök fyrir því:
,,Í mínum huga eiga að vera skýr skil á milli hinnar trúarlegu innrætingar og hinnar fræðilegu kennslu. Það vantar einnig ýtarlegri (sic) biblíugagnrýni, kenningar um hinn sögulega Jesú, kynningu á trúarlegu umhverfi þegar Biblían er rituð, trú Egypta, kynningu á (sic) betri kynningu á gnóstískum ritum. Svo ekki sé talað um Júdarsarguðspjall sem er merkilegasti fornleifafundur síðustu árhundruða.”
Áfram…