Unglingastarf Neskirkju og Dómkirkju, NeDó, er blómlegt að vanda og við erum sem stendur að undirbúa ferð á landsmót Æskulýðsfélaga á Hvammstanga næstu helgi. Mörg þeirra ungmenna sem að sækja starfið eru nú komin á 1. og 2. ár í menntaskóla og við erum sameiginlega að stefna á Evrópumót KFUM í Prag næsta sumar.
Í september reis hæst heimsókn okkar til MeMe, æskulýsfélags Digraneskirkju, og við fengum þar hreint frábærar móttökur. Anna Arnardóttir, MeMe meistari, leiddi okkur í gegnum allskonar skemmtilega leiki og kvöldið endaði með sameiginlegri lofgjörðarstund með öllum krökkunum. Þann 20. Nóvember munum við endurgjalda gestrisnina og fá vinafélagið í heimsókn til okkar. Með hjálp Diljáar heljarkanínu var tekið fullt af myndum af fjörinu. Við hlökkum til skemmtilegs vetrar með þessu frábæra unga fólki…