sigurvin.annáll.is

AnnállGuðfræðiKirkjustarfMinningarorðPrédikanir ofl.
  • Annálar

  • Tenglar

  • Eldri færslur

  • Leit

Barna og Unglingastarf Neskirkju að hefjast.

13.10 1/9/09 - 0 ath.

Þá er að hefjast nýr vetur í BaUN og mikil tilhlökkun er í börnum og leiðtogum. Í sparnaðarskyni var ákveðið að þétta dagskrá barnastarfsins og eru mánudagar og þriðjudagar nú þéttskipaðir en þjónustan við börnin og fjölskyldur þeirra er sú sama og undanfarin ár. Barnastarf kirkjunnar er sannarlega mikilvægt framlag til þjóðfélagsins nú en kirkjan býður upp á öruggan og uppbyggilegan vettvang fyrir börn og unglinga, foreldrum að kostnaðarlausu. Stundaskrá BaUN er eftirfarandi: stundaskraBaUNH09

Skýrsla BaUN 2008-2009

23.34 10/6/09 - 0 ath.

Eftir gjöfulan vetur í barna- og unglingastarfi Neskirkju (BaUN) er hér yfirlit yfir starf vetrarins.
Það eru sannarlega forréttindi að fá að þjóna ungmennum Vesturbæjar í gegnum kirkjuna.

Skýrsla barna- og unglingastarfs Neskirkju 2008-2009

Ferð unglingastarfs Neskirkju á Evrópumót KFUM í Prag

15.39 27/8/08 - 0 ath.

Unglingastarf Neskirkju sótti Evrópumót KFUM þann 3.-9. ágúst síðastliðinn.
Hópurinn samanstóð af 9 ungmennum á aldrinum 15-18 ára auk mín sem var fararstjóri hópsins.
Ferðasögu hópsins má nú nálgast hér (Ferðasaga Prag) á PDF formi en myndir úr ferðinni eru á myndasíðu BaUN.
Frekari upplýsingar um mótið má skoða heimasíðu mótsins YMCA2008 eða heimasíðu KFUM á Íslandi.

Sumar í Neskirkju !

09.55 12/6/08 - 0 ath.

Leikjanámskeiðum júnímánaðar í Neskirkju er lokið og var hress hópur af krökkum á báðum námskeiðunum. Námskeiðin voru vika í senn frá mánudegi til föstudags, klukkan 13–17. Á námskeiðunum gefst börnunum kostur á að kynnast kirkjunni og boðskap hennar í leik og starfi, auk þess að öðlast dýrmæt tengsl við nýja félaga. Myndir af námskeiðunum má finna á myndasíðu BaUN en tvö námskeið verða haldin í ágúst.
Áfram…

Starfsfólk leikskóla á fræðsludegi í Neskirkju.

22.08 18/5/08 - 0 ath.

Starfsfólk leikskóla á fræðsludegi í Neskirkju.
Laugardaginn 17. maí var öllu starfsfólki leikskóla í Vesturbæ boðið á fræðsludag á vegum Dómkirkju og Neskirkju. Markmið dagsins var að bjóða upp á uppbyggilega fræðsludagskrá til að styðja við það góða starf sem starfsfólk leikskólanna er að vinna. Við tókum fullt af myndum á þessum skemmtilega degi og þökkum öllum þáttakendum fyrir. Áfram…

Blátt áfram í safnaðarheimili Neskirkju

22.01 18/5/08 - 0 ath.

Miðvikudaginn 14. maí var haldið fræðslukvöld um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum. Foredrafélög leikskólanna Gullborg, Vesturborg, Ægisborg, Sæborg og Hagaborg stóðu fyrir kvöldinu sem var vel sótt enda mikilvægt málefni sem snertir okkur öll.
Áfram…

Skýrsla BaUN 2007-2008

23.58 13/5/08 - 0 ath.

Eftir blómlegan vetur í Barna og Unglingastarfi Neskirkju geta áhugasamir nú lesið starfsskýrslu vetrarins, sem lögð var fram á aðalsafnaðarfundi 4. maí síðastliðinn.
Skýrsla BaUN 2007-2008

Árshátíð NeDó

12.15 11/3/08 - 0 ath.

NeDó, unglingastarf kirkjunnar, hélt árshátíð þriðjudaginn 11. mars og þar var mikið um dýrðir. Á matseðli var dýrindis nautakjötsréttur og ís og ávextir á eftir. Vel var sótt af núverandi, fyrrverandi og verðandi NeDó-ingum og sérstakir heiðursgestir voru þau Hans Guðberg og Guðmunda sem sáum um NeDó starfið um árabil. Sr. Guðni Már Harðarsson kom og sagði gamansögur eins og honum er einum lagið. Myndir af herlegheitunum er hægt að sjá á myndasíðunni en þar eru einnig myndbönd af skemmtiatriðum kvöldsins.

Prédikun flutt í Neskirkju á Æskulýðsdaginn 02. mars

14.45 2/3/08 - 0 ath.

Náð sé með ykkur og friður frá Guði föður vorum og drottni Jesú Kristi, Amen.

Kæri söfnuður, gleðilega hátíð.

Á æskulýðsdegi þjóðkirkjunnar fagnar kirkjan börnum og ungmennum þessa lands og þegar við í Neskirkju lítum í kringum okkur á þau börn sem hingað sækja þjónustu höfum við sannarlega ástæðu til að fagna. Ávextir af barnastarfi kirkjunnar eru fjölbreyttir og ríkulegir og við erum sannarlega stollt af því hversu mörg börn kjósa að sækja hingað andlega næringu.
Áfram…

Lengsta súkkulaðikaka Vesturbæjar

12.11 2/3/08 - 0 ath.

6ms.jpg
Fyrir æskulýðsdag Þjóðkirkjunnar bökuðu ungmennin í unglingastarfi Neskirkju rúmlega 6 metra súkkulaðiköku en unglingarnir vöktu heila nótt í kirkjunni við bakstur. Krakkarnir stefna á Evrópumót KFUM í Prag næsta sumar og var safnað áheitum upp í ferðina. Kakan bragðaðist dýrðlega og vakti töluverða athygli. Myndir af gistinóttinni má nálgast hér.

« Fyrri færslur ·

© sigurvin.annáll.is · Færslur · Ummæli