sigurvin.annáll.is

AnnállGuðfræðiKirkjustarfMinningarorðPrédikanir ofl.
  • Annálar

  • Tenglar

  • Eldri færslur

  • Leit

Prédikun flutt í Neskirkju 7. ágúst 2011

Sigurvin @ 23.14 8/8

Svöngu börnin í Bíafra

famine-4Það er hátíð í kirkjunni þegar börn eru færð til skírnar. Í dag er því mikill fögnuður að tvö börn séu færð til skírnar í sömu messu umvafin svo stórum hópi ástvina. Í skírnarkveðjunni sem ég færði skírnarfólkinu standa ástæður þess að við færum barn til skírnar. Þar stendur ,,Barn er skírt vegna þess að Guð elskar það og vill sýna því elsku sína. Barn er skírt af því að foreldrar elska það og vilja fela það góðum Guði. “
Áfram…

Prédikun flutt í Neskirkju 31. júlí 2011

Sigurvin @ 10.46 31/7 + 1 ath.

Jesús kominn út úr skápnum

Með því að trúa á Krist Jesú eruð þið öll Guðs börn. Þið öll, sem eruð skírð til samfélags við Krist, hafið íklæðst Kristi. Hér er hvorki Gyðingur né annarrar þjóðar maður, þræll né frjáls maður, karl né kona. Þið eruð öll eitt í Kristi Jesú. Ef þið eruð í samfélagi við Krist þá eruð þið niðjar Abrahams og erfið það sem honum var heitið.

bd
Þann 29. mars síðastliðinn birtist frétt á vef BBC – Middle East um fornleifafund sem eins og segir í fréttinni gætu verið elstu kristu textar sem varðveist hafa, geymdir í 2000 ár í helli í Jórdaníu. Um er að ræða um 70 bækur sem steyptar eru í blý, hver með um 15 síðum og bundnar og innsiglaðar með blýhringjum. Áfram…

Eboo, Osló og trúarlínan

Sigurvin @ 13.18 24/7

actsoffaith

Þegar ég er vakandi fyrir því að leita að tilgangi í lífinu og tilgangi með lífi mínu leyfi ég mér stundum að túlka atburði sem hluta af æðri áætlun frekar en tilviljakenndar upplifanir. Ég upplifði slíkann atburð síðustu helgi og þó að ég sé varkár í að draga of stórtækar ályktanir sit ég eftir snortinn.

Áfram…

Prédikun flutt í Neskirkju sunnudaginn 26. júní 2011

Sigurvin @ 21.16 26/6 + 1 ath.

Eniga – meniga … allir rövla um peninga

0000070606-coins0023-002Textar dagsins fjalla um peninga.
Við skulum bara tala hreint út. Peningar skipta máli. Höfuðmáli.
Peningar eru eitt mikilvægasta aflið í mannlegu samfélagi.
Svo langt er síðan að peningar urðu fasti í mannlegu samfélagi að það kann að virðast sem að peningar hafi verið hluti mannkyns frá upphafi.
En hvað eru peningar? Áfram…

Guðrún Guðmundsdóttir f.13.08.1921-d. 13.06.2011

Sigurvin @ 17.54 22/6 + 2 ath.

GIJNKL3E Minningarorð
,,Mér dettur Edith Piaf í hug til að lýsa henni … grjóthörð, lítil, nett glæsileg – eins og ballerína.” Með þessum orðun var hennar minnst, Guðrúnar Guðmundsdóttur, sem við kveðjum í dag sadda lífdaga og minnumst þess hver hún var afkomendum sínum, fjölskyldu, vinum og samfélagi og þökkum skerf hennar í þágu lífsins.
Smellið hér til að hlusta á minningarorðin.

Áfram…

Prédikun flutt í Neskirkju á þrenningarhátíð 19. júní 2011

Sigurvin @ 18.46 19/6

Röklegt samhengi trúarinnar – trosnað teppi hugmynda úr frumkristni

Guðspjall: Mt 11.25-27
Á þeim tíma tók Jesús svo til orða: „Ég vegsama þig, faðir, Drottinn himins og jarðar, að þú hefur hulið þetta spekingum og hyggindamönnum en opinberað það smælingjum. Já, faðir, svo var þér þóknanlegt.
Allt hefur faðir minn falið mér og enginn þekkir soninn nema faðirinn, né þekkir nokkur föðurinn nema sonurinn og sá er sonurinn vill opinbera hann.

page50-1000-fullGleðilega hátíð, að þessu sinni þrenningarhátíð. Með stuttu millibili er sett á hið kirkjulega dagatal þrjár hátíðir. Fyrst þeirra er uppstigningardagur, þá hvítasunna og nú þrenningarhátíð. Séu uppstigningardagur og hvítasunna orðnir óþekktir og merkingarlausir dagar í okkar samfélagi er þrenningarhátíð enn fjarlægari. Sú hátíð markar þau skil að þær þrjár birtingarmynd Guðs sem að hjálpræðissaga Biblíunnar boðar eru komnar fram. Áfram…

Prédikun flutt í Neskirkju á 2. í Hvítasunnu 13. júní 2011

Sigurvin @ 14.56 14/6 + 1 ath.

Við erum Partar, Medar og Elamítar …

„Eru þetta ekki allt Galíleumenn sem hér eru að tala? Við erum Partar, Medar og Elamítar, við erum frá Mesópótamíu, Júdeu, Kappadókíu, Pontus og Asíu, frá Frýgíu og Pamfýlíu, Egyptalandi og Líbýubyggðum við Kýrene og við sem hingað erum flutt frá Róm. Hér eru bæði Gyðingar og þeir sem tekið hafa trú Gyðinga, Kríteyingar og Arabar. Við heyrum þá tala á tungum okkar um stórmerki Guðs.“

exceptionalpeopleVið erum stödd í atburðarás Postulasögunnar. Í miðju því undri sem að kirkjan hefur litið á sem vatnaskil hins unga átrúnaðar. Þeim atburði Hvítasunnudags sem aðskilur söguna af Jesú frá sögu kirkjunnar sem sjálfstæðrar hreyfingar. Postulasagan er seinni hluta tveggja binda verks, en fyrra bindið Lúkasarguðspjall rekur söguna af fagnaðarerindinu frá fæðingu frelsarans í Betlehem til dauða hans og upprisu í Jerúsalem. Postulasagan hefst á þeirri reynslu fylgjenda Jesú að sjá upprisinn meistara sinn stíga upp til himna Áfram…

Prédikun flutt í Neskirkju sunnudaginn 6. júní 2011

Sigurvin @ 16.06 6/6

Stund milli stríða – úrvinnsla erfiðrar reynslu

Konurnar voru með þeim … öll voru þau með einum huga stöðug í bæninni.

pentecost20Eins og leiftursmynd er pistill dagsins tekinn úr frásögn Postulasögunnar af atburðum daganna eftir upprisu Jesú. Við erum stödd í atburðarás þeirri sem að Tvíbókaritið rammar inn en Postulasagan, fimmta rit Nýja testamentisins, er ekki sjálfstæð bók heldur beint framhald Lúkasarguðspjalls og ritað af guðspjallamanninum sjálfum. Tvíbókaritið, Lúkasarguðspjall-Postulasagan, er grunnur hins kristna dagatals og uppspretta þeirrar hátíðahefðar sem að tímatal okkar byggir á. Áfram…

Prédikun flutt í Neskirkju á degi barnsins 29. maí 2011

Sigurvin @ 08.52 30/5

Aðferðafræði þrautsegjunnar – Frekja, dónaskapur og bæn!

1278351485_287e1e412e1-150x150Það er vor í lofti á margvíslegan hátt í kirkjunni þessa dagana. Síðasta vika hefur verið vika voruppskeru í Neskirkju en allt barnastarf kirkjunnar er nú komið í sumarfrí. Síðastliðinn sunnudag var vorferð sunnudagaskólans en úr messu fór rúta á sveitabæinn Grjóteyri í Kjós þar sem að sunnudagaskólabörn, foreldrar, ömmur og afar fengu að koma við ungviðið á bænum og borða pylsur í sveitaloftinu.
Áfram…

Prédikun flutt í Neskirkju á 2. í Hvítasunnu 24. maí 2010

Sigurvin @ 22.28 24/5

Gleðilega hátíð kæri söfnuður. Í kristinni kirkju eru haldnar þrjár stórhátíðir og má til sannsvegar færa að Hvítasunnuhátíðin sé sú hátíð sem að maður verður minnst var við í menningu okkar. Engin hefð er fyrir Hvítasunnuskrauti eða siðum, líkt og tilheyra páskum og jólum, og í daglegri yfirferð minni um fréttamiðla landsins í gær voru engin merki að sjá að runnin væri upp stórhátíð á Íslandi.
Áfram…

« Fyrri færslur  

© sigurvin.annáll.is · Færslur · Ummæli